Nú eru til sýnis listaverk eftir börn í 1. – 6. bekk Grunnskólans Höfn í Hornafirði. List fyrir alla fór í skemmtilegt samstarf við Hönnu Dís Whitehead þar sem þau unnu saman að listaverki.
Verkin sem eru innblásin af listaverki Þorvarðar Árnasonar, sem nú er til sýnis í Norræna húsinu á sýningunni Gárur: umbreytingar á norðurslóðum. Með Vatnajökul sem viðfangsefni nálgast börnin jökulinn frá sjónarhorni fuglsins. Þau skoða bæði nákvæm smáatriði í landslaginu og heildarmynd jökulsins séða úr fjarlægð. Í verkunum mætast forvitni, ímyndunarafl og tengsl barna við náttúruna og jökulinn sem þau sjá frá bænum sínum. Verkin verða til sýnis á barnasýningunni Norðrið í barnabókasafni Norræna hússins





