20. febrúar 2026

Barnamenningarsjóður er nú opinn fyrir umsóknir

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Barnamenningarsjóðinn. Umsóknarskil eru að þessu sinni fyrr en vanalega eða 20. mars. Við hvetjum barnamenningarvæn verkefni að sækja um á www.rannis.is

Hlutverk Barnamenningarsjóðs er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi.
Í starfi sjóðsins er m.a. horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.

Barnamenningarsjóður Íslands hafi að markmiði að fjármagna og styrkja verkefni á sviði barnamenningar. Jafnframt verði lögð áhersla á verkefni sem efli samfélagsvitund og stuðli að lýðræðislegri þátttöku barna í samfélaginu og verkefni er stuðli að áframhaldandi innleiðingu barnasáttmálans, samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.

Fyrir hverja?

Listafólk, félagasamtök og aðrir lögaðilar sem sinna menningarstarfi fyrir börn og ungmenni í samræmi við opinbera menningarstefnu. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru með virkri þátttöku barna og/eða fyrir börn

Fyrirspurnir sendist á barnamenningarsjodur@rannis.is