Í Listkennsludeild Listaháskóla Íslands er saman kominn hópur listamanna úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustu samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum.
Ár hvert ferðast hluti þessa hóps með Listalest LHÍ til grunnskóla um landið og heldur vinnusmiðjur með nemendum þar sem áhersla er lögð á samruna listgreina.
Í ár ferðaðist Listalestin í Sjálandsskóla í Garðabæ og hélt tólf vinnusmiðjur fyrir 1. – 10. bekk.
Afrkastur Listalestarinnar verður sýndur í dag í Sjálandsskóla.
Við þökkum starfsfólki og nemendum Sjálandsskóla fyrir frábært og gjöfult samstarf.
Sýningarstjóri er Tinna Guðmundsdóttir.
Verkefnastjóri eru Bryndís Guðjónsdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir

