4. júní 2026

Málæði hefur göngu sína á ný!

Málæði fer nú af stað öðru sinni. Unglingum landsins í 8. – 10. bekk er boðið að semja lög og texta í samstarfi við íslenskt tónlistarfólk. Málæði er ætlað að hvetja ungt fólk til að tjá sig á íslensku í tali og tónum.
Skilaboðin eru að tungumálið er okkar allra og það má leika sér með það. 

Skilafresturinn er 3. október og verður afraksturinn sýndur á RÚV í viku íslenskunnar þann 16. nóvember 2026.