Málæði 2026
Warning: Trying to access array offset on value of type bool in /var/www/virtual/listfyriralla.is/htdocs/wp-content/themes/listfyriralla/single-event.php on line 12

Warning: Attempt to read property "name" on null in /var/www/virtual/listfyriralla.is/htdocs/wp-content/themes/listfyriralla/single-event.php on line 12

Málæði 2026

Málæði hefur göngu sína á ný!

Málæði fer nú af stað í þriðja sinn. Unglingum landsins í 8. – 10. bekk er boðið að semja lög og texta í samstarfi við íslenskt tónlistarfólk. Málæði er ætlað að hvetja ungt fólk til að tjá sig á íslensku í tali og tónum. Skilaboðin eru að tungumálið er okkar allra og það má leika sér með það.

Hægt er að taka þátt með tvennum hætti. Annars vegar semja íslenskan popplagatexta og hins vegar að semja lag og texta frá grunni og senda inn.

Skilafresturinn er 3. október og verður afraksturinn sýndur á RÚV í viku íslenskunnar þann 16. nóvember 2026.

Allar nánari upplýsingar um Málæði og innsendingaformið má finna á Listveitu Listar fyrir alla: https://veita.listfyriralla.is/title/malaedi-2026/

ði

 

Upplýsingar
Hvað

Tónlist

Hvenær

Haustið 2026

Hvar

Um land allt

Hverjir

Tónlistarfólk

Aldurshópur

8. - 10. bekkur

Aðstaða og tækni