19. janúar 2016

Munnleg geymd og kortlagning minninga

Farandlistsmiðja Skaftfells, Munnleg geymd og kortlagning minninga, er nú í fullum gangi þar sem hönnuður og leiðbeinandi smiðjunnar, listakonan Ragnheiður Maísól Sturludóttir, ferðast þessa dagana á milli skóla á Austurlandi og kennir smiðjuna.
Í smiðjunni munu nemendur kynnast hugtakinu munnleg geymd og kafa í kjölfarið ofan í eigin minninga- og frásagnarbrunn með útgangspunktinum staður í þeirra nágrenni sem vekur hjá þeim minningar um atburð, upplifun eða hugrenningatengsl sem þau eiga tengdum staðnum og gera þau í buycialiscanadaonline kjölfarið kort eftir minni og reyna að útfæra frásögnina á kortið. Ragnheiður mun um leið gera hljóðupptöku á frásögn þeirra tengdum kortunum og verður bæði upptökum og kortum safnað saman á heimasíðu sem verður tileinkuð verkefninu. Heimasíðan verður kynnt síðar í október.