BRUM List

BRUM

BRUM er hljóðganga í skógi. Þátttakendur hlusta sig inn í skóginn og upplifa tengsl trjánna hvert við annað og manneskjuna. Hvernig er skógurinn í þínu nærumhverfi og hversu vel tekur þú eftir trjánum  í kringum þig , veistu hvað þau heita? Hefur þú faðmað tré? Í BRUM gefst þér tækifæri til að fara inn fyrir börkinn og kynnast trjánum á áður óþekktan máta.

Trén í skóginum eru flytjendur verksins og leiða áhorfendur í gegnum ferðalag þar sem þau miðla djúpri vitneskju tilvistar sinnar sem á ævintýralegan hátt endurspegla samfélag manna. Áhorfandinn leggur af stað í leiðangur einsamall eða í félagsskap náinna ferðalanga. Í BRUM gefst áhorfandanum tækifæri á að hverfa tímabundið úr mannmiðjaðri hugsun og slaka inn í augnablikið sem skógurinn hefur uppá að bjóða í hvers kyns veðráttu sem ríkir. Trén hafa áhrif á skynjun áhorfandans í skóginum, mótandi og stýrandi, til dæmis með því að láta áhorfandann leika, snerta, tala og syngja,

Upplýsingar
Hvað

BRUM er hljóðganga í skógi.

Hvenær

Haustið 2022

Hvar

Selfoss -Hellisskógur - Reykholt

Hverjir

Kara Hergils Valdimarsdóttir
Andrea Vilhjálmsdóttir

Aldurshópur

1. - 10. bekkur

Aðstaða og tækni

Aðgegni að grónu landsvæði, trjálundi eða skógi þar sem hægt að setja verkið upp.