Dansaðu fyrir mig Dans

Dansaðu fyrir mig

Ármann Einarsson er þriggja barna faðir og býr á Akureyri. Hann er 51 árs gamall, 172 sentímetrar á hæð og með ansi myndarlega bumbu.

Fyrir fjórum árum síðan kom Ármann að máli við tengdadóttur sína, danshöfundinn Brogan Davison, og skýrði henni frá því að sig hefði alltaf dreymt um að dansa samtímadans á sviði. Úr varð að þau Brogan og Ármann sömdu dansverk sem þau frumsýndu á Akureyri árið 2013, en nú vill Ármann elta drauminn sem lengst og dansa fyrir sem flesta. Ármann hefur dansað yfir þriðja tug sýninga í sex mismunandi löndum og virðist draumurinn heldur betur vera að rætast. Nú fá grunnskólanemar í Reykjavík einstakt tækifæri til að upplifa þetta einlæga og bráðfyndna leikhúsverki um að þora láta drauma sína rætast. Er dans fyrir alla?

 

Upplýsingar
Hvað

Dansaðu fyrir mig

Hvenær

15. - 18. nóvember

Hvar

Reykjavík

Hverjir

DFM og Reykjavík Dance Festival

Aldurshópur

8. - 10. bekkur

Aðstaða og tækni

Rými, að lágmarki 4,5 - 6,5m. Tjald til að varpa á.