Fyrirlestur um eitthvað fallegt Leiklist

Fyrirlestur um eitthvað fallegt

Baldur stígur á svið og er að hefja fyrirlestur um nýjasta listaverk sitt. Hann finnur að eitthvað er ekki eins og það á að vera… hann frýs. Hann er að fá sitt fyrsta kvíðakast. Hann kíkir inn í heilann sinn og sér þá hvar stjórnstöðin er að bila.

Rannsóknir sýna að á hverju ári þjáist um 12% Íslendinga af óeðlilegum eða sjúklegum kvíða. Leikverkið fjallar á gamansaman hátt um þetta erfiða málefni, með það að markmiði að vekja fólk til meðvitundar og opna umræðuna um geðheilbrigði á Íslandi enn frekar.

Við kynnumst Baldri – ótta hans, þrálátum hugsunum og leit hans að lausn. Við kynnumst líka öllum hinum Böldrunum, því kvíði býr í okkur öllum. Birtingarmyndir kvíða geta verið ótalmargar og upplifun hvers og eins er sérstök. Fimm leikarar túlka mörg andlit kvíðans, í sjónrænu, gamansömu leikverki.

Í verkinu er kvíðinn skoðaður frá ýmsum sjónarhornum og kafað í tilfinningar, hugsanir, magaverki, samfélagsmiðla, geðlyf, svefntruflanir, sjálfsþekkingu, sigra, bata, hugarangur, sálarfrið og kvíðaofurhetjur.

Höfundur: SmartíLab-hópurinn
Leikstjórn: Sara Martí
Framkvæmdastjórn: Martin L. Sörensen
Leikmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir
Ljósahönnun: Arnar Ingvarsson
Leikarar: Agnes Wild, Guðmundur Felixson, Kjartan Darri Kristjánsson, Elísabet Skagfjörð, Bjarni Snæbjörnsson
Hljóðmynd og myndbönd: SmartíLab-hópurinn
Grafísk hönnun og umbrot: Martin L. Sörensen
Ljósmyndir: Ásgeir Ásgeirsson

Hér má finna myndskeið úr verkinu:

Upplýsingar
Hvað

Gamanleikrit um kvíða

Hvenær

15. október 2019

Hvar

Reykjanes

Hverjir

SmartíLab
Agnes Wild
Guðmundur Felixson
Kjartan Darri Kristjánsson
Elísabet Skagfjörð
Bjarni Snæbjörnsson

Aldurshópur

8.-10.bekkur

Aðstaða og tækni

Svið - ljós - hljóð