Gilitrutt, ópera fyrir fólk Ópera

Gilitrutt, ópera fyrir fólk

Barnaóperan um Gilitrutt er hluti af röð Töfrahurðar tónlistarútgáfu sem stefnir að því að koma íslenskum þjóðsögum og öðrum menningararfi í nýjum búningum til íslenskra barna. Þjóðsagan er flutt til nútímans; Gilitrutt og bóndahjónin eiga farsíma og Gilitrutt kvartar yfir því að ná engu fólki lengur því það bruni bara framhjá á jeppum og týnist aldrei lengur uppi í fjöllum. Sagan heldur sér þó nokkurn veginn óbreytt. Gerður bóndakona þjáist af verkfælni og vill geyma verkefnin til morguns sem aldrei kemur svo Þórður bóndi hennar þarf að vinna öll verkin.

Persónur og leikendur
Gilitrutt: Hallveig Rúnarsdóttir
Þórður: Þorkell Helgi Sigfússon
Gerður: María Sól Ingólfsdóttir

Píanóleikari: Hrönn Þráinsdóttir

Höfundar
Tónlist: Hildigunnur Rúnarsdóttir
Söngtextar: Salka Guðmundsdóttir
Myndir: Heiða Rafnsdóttir

Upplýsingar
Hvað

Gilitrutt, ópera fyrir fólk

Hvenær

2. október 2018

Hvar

Edinborgarhúsið - Ísafjörður

Hverjir

Hallveig Rúnarsdóttir
Þorkell Helgi Sigfússon
María Sól Ingólfsdóttir
Hrönn Þráinsdóttir

Aldurshópur

1. - 5. bekkur

Aðstaða og tækni

Edinborgarhúsið