Listalestin Listasmiðjur

Listalestin

Í listkennsludeild Listaháskóla Íslands er saman kominn hópur fólks úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustum samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum.
Listalest LHÍ samanstendur af hópi listkennslunema og hefur sá hópur stækkað og dafnað síðustu ár.
Listalest LHÍ mun  halda þverfaglegar vinnusmiðjur fyrir unglinga í 8. 9. og 10. bekk í Grunskólunum þar sem áhersla verður lögð á samruna listgreina. Verkefnið kemur til með að mótast og þróast í samstarfi við listgreinakennara sem og aðra kennara í viðkomandi skólum og munu nemendur listkennsludeildar vinna í samstarfi við þá.
Afurðir vinnusmiðjanna verða svo verða settar upp sem listasýningar undir leiðsögn sýningarstjóra.

Hægt er að sjá afrakstur Listalesta síðustu ára á listveitunni undir listkennsla.

Hér má sjá umfjöllun um Listalestin frá því hún var á Egilsstöðum haustið 2018:

 

 

 

Upplýsingar
Hvað

Listalest LHÍ

Hvenær

Vorið 2025

Hvar

Suðurland

Hverjir

Listamenn LHÍ - Listgreinakennarar

Aldurshópur

8.-10. bekkur

Aðstaða og tækni

Efnisveita