23. apríl 2024

BIG BANG tónlistarhátíðin í Hörpu 25. apríl

BIG BANG Festival verður haldin í Hörpu þann 25. apríl frá klukkan 11-16 og er frítt á alla viðburði.
BIG BANG er ævintýraleg evrópsk tónlistarhátíð fyrir unga áheyrendur. Markmið hátíðarinnar er að auka aðgengi barna að tónlist þar sem þau fá að upplifa fjölbreytta og metnaðarfulla efnisskrá er samanstendur af tónleikum, innsetningum og tónlistartengdum smiðjum undir handleiðslu fagfólks í tónlist.

Markmið hátíðarinnar er að auka aðgengi barna að tónlist. Tónlistarhátíðin var stofnuð árið 2010 af sex evrópskum samstarfsaðilum. Árið 2015 hlaut hátíðin hin virtu EFFE-verðlaun sem veitt eru framúrskarandi evrópskum menningarhátíðum. Árið 2018 hlotnaðist BIG BANG fjögurra ára stuðningur á vegum Creative Europe-áætlunar Evrópusambandsins og var Barnamenningarhátið Reykjavík boðin þátttaka í verkefninu 2019.
Sérstök áhersla er lögð á að fá til leiks tónlistarfólk og tónskáld sem sjá ævintýrið í tónlistarsköpun sinni og vilja leita frjórra leiða til að gera öllum börnum kleift að sækja tónleika og eiga þar ríkulega og eftirminnilega reynslu. Einnig er sóst eftir samstarfi við aðila innan menningargeirans sem leggja kapp á að ná til nýrra áhorfenda.

Öll velkomin!