Gull og grjót á skólalóðinni Hönnun

Gull og grjót á skólalóðinni

Gull og grjót á skólalóðinni er verkefni sem beinir sjónum okkar að listrænum gæðum og upplifunum í nánasta umhverfi okkar. Gull finnst flestum heillandi og jákvætt en grjót hefur á sér neikvæðari blæ – eða hvað? Er kannski hægt að breyta grjóti í gull og umbreyta þannig  ljótu í fallegt?

Nemendur fá innsýn í viðfangsefni arkitekta, öðru nafni byggingarlistamanna og myndlistarmanna sem vinna í opinberu rými með “veggi” og “gólf” í umhverfi okkar utan bygginganna sjálfra. Þeir taka þátt í að meta gull og grjót eða gæði skólalóðinnar sinnar og fá að beita sér í gegnum listina til að gera hana að betri stað.

Guja Dögg Hauksdóttir er arkitekt, sem hefur mikla reynslu af kennslu á öllum aldursstigum.

Hún er höfundur bókarinnar Byggingarlist í augnhæð, um grunnatriði byggingarlistar sem gefin var út á vegum Námsgagnastofnunar í samstarfi við Arkitektafélag Íslands.

Arnór Kári Egilsson er myndlistarmaður, sem vinnur í ýmsa miðla og á breiðum vettvangi lista.

Hann er höfundur fjölda vegglistaverka í opinberu rými, meðal annars fyrir Listahátíð í Reykjavík og Art Attack á Neskaupstað.

Hér má finna myndband sem þær Guja Dögg og María Sjöfn tóku með svipað verkefni á sunnanverðum Vestfjörðum

 

 

Upplýsingar
Hvað

Byggingarlist og hönnun

Hvenær

maí 2019 Austurland

Hvar

21. mai Stöðvarfjörður/Breiðdalsvík, 22. mai Djúpivogur, 23. - 24. mai Höfn

Hverjir

Guja Dögg Hauksdóttir
Arnór Kári Egilsson

Aldurshópur

1. - 10. bekkur

Aðstaða og tækni

Salur með skjávarpa fyrir skyggnufyrirlestur. Skólalóð (völlur eða veggfletir). Upptökutæki, mynd og hljóð ef mögulegt er.