Listalestin er samstarfsverkefni List fyrir alla, Listaháskóla Íslands, listkennsludeildar Listaháskóla Íslands og grunnskóla á landsbyggðinni. Listalestin heldur þverfaglegar vinnusmiðjur fyrir ungmenni í 8. 9. og 10. bekk í grunnskólum þar sem áhersla verður lögð á samruna listgreina. Verkefnið kemur til með að mótast og þróast í samstarfi við listgreinakennara sem og aðra kennara í viðkomandi skólum og munu nemendur listkennsludeildar vinna í samstarfi við þá. Afurðir vinnusmiðjanna verða svo verða settar upp sem listasýning undir leiðsögn sýningastjóra.
Í listkennsludeild Listaháskóla Íslands er saman kominn hópur fólks úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustum samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum.
Listalest LHÍ samanstendur af hópi listkennslunema og hefur sá hópur stækkað og dafnað síðustu ár. Þar er saman kominn hópur fólks úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustum samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum.
Hægt er að sjá afrakstur Listalesta síðustu ára á listveitunni undir listkennsla.
Í ár mun Listalestin ferðast á Suðurland og halda vinnusmiðjur fyrir 8. – 10. bekk í Bláskógaskóla, Flóaskóla, Flúðaskóla, Kerhólsskóla og Reykholtsskóla og Þjórsárskóla og verður afraksturinn sýndur í Félagslundi og sýningarstjóri í ár er Tinna Guðmundsdóttir.
Listalest LHÍ
Vorið 2025
Suðurland
Listamenn LHÍ - Listgreinakennarar
8.-10. bekkur
Efnisveita