Sam og kjarnorkuverið í næsta húsi Kvikmyndir

Sam og kjarnorkuverið í næsta húsi

Stuttmyndin Sam og kjarnorkuverið í næsta húsi er ensk stuttmynd ætluð mið og unglingastigi grunnskólans.
Hér segir af hinum 11 ára gamla Sam sem býr og elst upp við hliðina á stærsta kjarnorkuveri Bretlands.  Sam hefur verulegar áhyggjur af því hvaða áhrif kjarnorkuverið hafi á heiminn í kringum hann. Myndin vann Ekko Shortlist verðlaun fyrir bestu heimildarmyndina.

Vönduð barna- og unglingadagskrá RIFF er sett saman fyrir yngstu kynslóðina til að kynna fyrir þeim kvikmyndalistina og gefa þeim kost á að sjá bíómyndir alls staðar að úr heiminum. Bæði er um að ræða kvikmyndir í fullri lengd svo og stuttmyndir sem hæfa hverjum aldursflokki fyrir sig. Myndirnar eru ætlaðar börnum og unglingum frá 4 til 16 ára.
Í tilefni breyttra aðstæðna í samfélaginu býðst skólum um land allt flott stuttmyndaprógramm RIFF í samvinnu við List fyrir alla. Fylgir sérstakt kennsluefni með fyrir kennarara tengt myndunum.
Sýningar verða einnig í Norræna húsinu og þá talsettar af leikurum jafnóðum.

Upplýsingar
Hvað

Sam og kjarnorkuverið - Stuttmynd

Hvenær

7.-9. september 2020

Hvar

Norræna Húsið og skólar landsins

Hverjir

RIFF Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík.

Aldurshópur

11 ára plús

Aðstaða og tækni