Baldursbrá Ópera

Baldursbrá

Ævintýraóperan Baldursbrá er eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson.

Tónlistin byggir að hluta á íslenskum þjóðlögum, bæði rímnalögum og þulum, en þar bregður einnig fyrir rappi og fjörlegum dönsum. Söngvarar eru Fjóla Nikulásdóttir sópran í hlutverki Baldursbrár, Eyjólfur Eyjólfsson tenór syngur Spóa og Jón Svavar Jósefsson baritón er Rebbi. Hrönn Þráinsdóttir spilar á píanó.

Óperan segir frá Baldursbrá sem kynnist sposkum Spóa. Þau ákveða að fara saman upp á fjallstind til þess að njóta útsýnisins en það reynist ekki einfalt mál. Þau fá Rebba til að grafa blómið upp og flytja það á efstu eggjar en þar vofir mikil hætta yfir. Næðingur og kuldi gera blóminu lífið leitt auk þess sem stórhættulegur hrútur eigrar þar um í leit að æti. Yrðlingar Rebba vilja ólmir sýna að þeir séu orðnir fullorðnir og hyggjast fella hrútinn en hann er þeim sýnd veiði en ekki gefin. Dýrin hyggjast bjarga Baldursbrá og flytja hana heim í gömlu lautuna sýna en svarta þoka og eðlislæg misklíð þeirra á milli virðist ætla að koma í veg fyrir að blómið lifi ferðalagið af.

Hér er um að ræða stuttan úrdrátt úr óperunni þar sem Rebbi, Spói og Baldursbrá segja frá sögunni og syngja valda kafla úr verkinu.

 

Upplýsingar
Hvað

Ópera

Hvenær

7. - 10. nóvember

Hvar

Snæfellsnes og Norðvesturland.

Hverjir

Fjóla Kristín Nikulásdóttir
Jón Svavar Jósepsson
Eyjólfur Eyjólfsson
Hrönn Þráinsdóttir

Aldurshópur

1. - 5 bekkur

Aðstaða og tækni

Píanó og tónleikarými