Munnleg geymd og kortlagning minninga Myndlist

Munnleg geymd og kortlagning minninga

Hvað er munnleg geymd?

Hvernig birtist fyrirbærið okkur í dag ólíkt fyrri tímum þar sem fólk reiddi sig nær eingöngu á eigið minni til að koma frásögnum og þekkingu til skila?

Hugtakið munnleg geymd verður krufið bæði í tengslum við gamla og nýja tíma og í kjölfarið skoðað hvað gerist þegar munnleg geymd er skrásett. Nemendur munu vinna verkefni þar sem þeir fá að kafa ofan í sinn eigin minninga- og frásagnarbanka þar sem útgangspunkturinn er staður í þeirra nágrenni sem vekur hjá þeim minningar um atburð, upplifun eða hugrenningatengsl sem þau eiga tengdum staðnum og gera í kjölfarið kort eftir minni og reyna að útfæra frásögnina á sjónrænan hátt.

Hönnuður og leiðbeinandi verkefnisins er Ragnheiður Maísól Sturludóttir en hún útskrifaðist með BA gráðu úr myndlistadeild Listháskóla Íslands vorið 2013 en þar að auki hefur hún verið með annan fótinn í leiklist s.s. Improv Ísland og meðlimur í Sirkus Íslands auk þess sem hún hefur stýrt fjölda ólikra verkefna þ.á.m. haldið utan um og kennt listnámskeið fyrir börn.

Frá árinu 2007 hefur Skaftfell sent út af örkinni fræðsluverkefni þar sem öllum grunnskólum á Austurlandi (allt frá Vopnafirði til Djúpavogs) er boðin þátttaka þeim að kostnaðarlausu í fræðsluverkefnum sem eru með ólíku sniði hverju sinni en ávallt með áherslu á myndlist (sjá http://skaftfell.is/fraedsluverkefni-fyrir-grunnskola/). Námskeiðin miðast við nemendur á miðstigi.

 

Upplýsingar
Hvað

Munnleg geymd og kortlagning minninga

Hvenær

Október 2016

Hvar

Austurland

Hverjir

Skaftfell
Ragnheiður Maísól Sturludóttir
Þóranna Eymundardóttir

Aldurshópur

5. - 7. bekkur

Aðstaða og tækni

Farandlistsmiðja