Kimya Kvikmyndir

Kimya

Hollenska stuttmyndin Kimya er ætluð börnum frá 9 ára aldri. Myndin er í leikstjórn Amiru Duynhouwer og segir frá Josie sem fær loksins að vera ein heima í fyrsta sinn en áttar sig fljótlega á því að heimilið er ekki það saman þegar hún er þar ein.


Vönduð barna- og unglingadagskrá RIFF er sett saman fyrir yngstu kynslóðina til að kynna fyrir þeim kvikmyndalistina og gefa þeim kost á að sjá bíómyndir alls staðar að úr heiminum. Bæði er um að ræða kvikmyndir í fullri lengd svo og stuttmyndir sem hæfa hverjum aldursflokki fyrir sig. Myndirnar eru ætlaðar börnum og unglingum frá 4 til 16 ára.
Í tilefni breyttra aðstæðna í samfélaginu býðst skólum um land allt flott stuttmyndaprógramm RIFF í samvinnu við List fyrir alla. Fylgir sérstakt kennsluefni með fyrir kennarara tengt myndunum.
Sýningar verða einnig
í Norræna húsinu og þá talsettar af leikurum jafnóðum.

 

 

Upplýsingar
Hvað

Kimya- Stuttmyndastund

Hvenær

7.-9. september 2020

Hvar

Norræna Húsið og skólar landsins

Hverjir

RIFF Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík.

Aldurshópur

4. - 10. bekk

Aðstaða og tækni