Námskeiðið býður börnum að læra að búa til sitt eigið lag undir leiðsögn Ingvars Alfreðssonar. Námskeiðið er þrjú skipti, klukkutíma í senn, kennt verður í litlum hópum í Borgarbókasafninu í Grófinni.
Kennt verður sunnudagana 9. 16. og 23. nóvember.
Hópur 1: kl. 11:15-12:15
Hópur 2: kl. 12:15-13:15
Hópur 3: kl. 13:15-14:15
Námskeiðslýsing:
Ingvar Alfreðsson er sjálfstætt starfandi tónlistamaður, píanóleikari, útsetjari og höfundur. Hann útskrifaðist úr frá Berklee College og Music í Boston, þar sem hann lauk námi í “Contemporary Writing and Production”- sem er blanda af úsetningum, upptökustjórn og lagasmíðum. Hann hefur víða komið við sem hljóðfæraleikari, bæði á sviði og í sjónvarpi og er til að mynda hljómsveitastjóri og útsetjari Fiskidagstónleikana á Dalvík, auk annarra stórtónleika. Hann kennir upptökustjórn og samspil Í MÍT og FÍH og starfar einnig sem meðleikari í söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz. Þá stjórnar hann barna- og unglingakórum Vídalínskirkju sem og Gospelkór Jóns Vídalíns.