Listalestin er samstarfsverkefni List fyrir alla, listkennsludeildar Listaháskóla Íslands og grunnskóla á landsbyggðinni. Á hverju ári eru haldnar listasmiðjur fyrir ungmenni í 8.- 10. bekk í grunnskóla utan höfuðborgarsvæðisins með áherslu á samruna listgreina.
Föstudaginn 9. maí verður sýning á verkum nemenda í 8. – 10. bekk í Bláskógaskóla, Flóaskóla, Flúðaskóla, Kerhólsskóla, Reykholtsskóla, og Þjórsárskóla í Félagslundi í Flóahreppi undir handleiðslu Tinnu Guðmundsdóttur sýningarstjóra.
Í listkennsludeild Listaháskóla Íslands er saman kominn hópur listamanna úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustu samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum.
Ár hvert ferðast hluti þessa hóps undir yfirskriftinni Listalest LHÍ til grunnskóla um landið og heldur vinnusmiðjur fyrir unglingastig (8.-10. bekk) þar sem áhersla er lögð á samruna listgreina.
Á listveitunni undir Listkennsla er hægt að sjá og fræðast um Listalestir síðustu ára.