Heimsókn til Thalíu Leiklist

Heimsókn til Thalíu

Á vormánuðum 2026 mun leikhópurinn Baksviðs bjóða nemendum í 4. og 5. bekk í grunnskólum Vesturlands á leiksýninguna “Heimsókn til Thalíu”. Verkið hverfist um heimsókn nemenda í leikhúsið þar sem þeir hitta leiklistargyðjunnar Thalíu sem kynnir fyrir þeim töfra leiklistarinnar. Nemendur skyggnast á bak við tjöldin, hitta litríka einstaklinga sem vinna í leikhúsinu og verða þátttakendur í æsispennandi leikhúsupplifun sem teygir sig um ólíka kima leikhússins.

Leikkonurnar og leiklistarkennararnir Vigdís Gunnarsdóttir og Halldóra Rósa Björnsdóttir standa að baki leikhópsins Baksviðs sem ætlað er að efla þekkingu og upplifun grunnskólabarna á leiklist.

Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Vesturlands.

 

 

Upplýsingar
Hvað

Leikhús

Hvenær

Mars/apríl 2026

Hvar

Félagsheimilum á Vesturlandi

Hverjir

Leikhópurinn Baksviðs

Aldurshópur

4. og 5. bekkur

Aðstaða og tækni

Félagsheimili sem kallast á við þá klassísku hugmynd sem flestir hafa um leikhús; forsalur, afmarkað áhorfendarými og upphækkað svið auk ljósa og hljóðkerfis sem leikhópurinn sér um að útvega.