8. september 2025

Skráning er í fullum gangi!

Nú er skráningin í fullum gangi fyrir Risastóru Lestrarkeppnina 2025!

Allir skólar á landinu geta tekið þátt og keppa um það hver les mest á tímabilinu
15. september til 15. október.
Skólar skrá niður hversu lengi nemendur lesa og senda inn tölur í lok október.
Skólinn sem les í flestar mínútur sigrar keppnina og hreppir titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins ásamt því að fá glæsileg bókaverðlaun. Að auki fær sá skóli sem les mest í sínum landshluta sérstaka viðurkenningu. 
Sigurvegari keppninnar er tilkynntur á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, í sjónvarpsþættinum Málæði sem sýndur er á RÚV.

Smellið hér til að kynna ykkur verkefnið nánar og skrá skólann til leiks!