BIG BANG Festival verður haldin í Hörpu þann 24. apríl frá klukkan 11-16.
BIG BANG er ævintýraleg evrópsk tónlistarhátíð fyrir unga áheyrendur og er markmið hátíðarinnar að auka aðgengi barna að tónlist þar sem þau fá að upplifa fjölbreytta og metnaðarfulla efnisskrá er samanstendur af tónleikum, innsetningum og tónlistartengdum smiðjum undir handleiðslu fagfólks í tónlist.
Sérstök áhersla er lögð á að fá til leiks tónlistarfólk og tónskáld sem sjá ævintýrið í tónlistarsköpun sinni og vilja leita frjórra leiða til að gera öllum börnum kleift að sækja tónleika og eiga þar ríkulega og eftirminnilega reynslu. Einnig er sóst eftir samstarfi við aðila innan menningargeirans sem leggja kapp á að ná til nýrra áhorfenda.
Frítt er á alla viðburði – Öll velkomin!
Dagskrá:
Í leit að stjörnum
Norðurljós og Eyri
12:00 / 14:15
Hringdans – Rímnadanshljómsveitin S.L.Á.T.U.R.
Norðurljós
13:15 / 15:15
Trio Oro
Hörpuhorn
11:15 / 13:45 / 15:45
Zigoto
Kaldalón
11:30 / 12:30 / 13:30
Los Bomboneros
Kaldalón
14:30 / 15:15
Dýratónar – hljóðbað
Ríma
12:00 / 12:20 / 13:00 / 13:20/ 14:00 / 14:20 /14:40
Watachico + Skólahljómsveit Kópavogs
Flói
12:15 / 13:15
A Cloud Embraced
Flói
14:00 / 15:00
Hnokkar
Í opnum rýmum Hörpu
Af og til yfir daginn
MANNDÝR
Vísa
12:00 / 13:00 / 14:00
Hljóðhimnar
Hljóðhimnarými
11:00 – 16:00
Kósyhorn Borgarbókasafnsins
Norðurbryggja
11:00 – 16:00
Maximús Músíkús
Hér og þar um húsið
Af og til yfir daginn þegar Maxa hentar
Hringleikur
Um allt hús
Af og til yfir daginn