27. febrúar 2017

Norræna húsið býður ungmennum á Nordic Film festival.

Í tilefni af Nordic Film Festival býður Norræna húsið upp á sérstakar skólasýningar fyrir nemendur og kennara. Hægt er að velja um tvær myndir á grunnskólastigi og eina mynd á menntaskólastigi.

Allar myndirnar eru með enskum texta og umræður fara fram á ensku. Pláss er fyrir 80 nemendur í salnum.

Skráning: info@nordichouse.is (takmarkað pláss).

BUGS (DK) Sýningartími: föstudaginn 10. mars kl. 10:00 + spurt og svarað með leikstjóranum.

Leikstjórinn Andreas Johnsen verður viðstaddur sýninguna til að svara spurningum áhorfenda og deila með okkur reynslu sinni.

Bekkir: 9. – 10. Sýnishorn https://www.youtube.com/watch?v=yuXwsFXfASA

Undanfarin þrjú ár hefur hópur vísindamanna og matreiðslumeistara frá Kaupmannahöfn, Nordic Food Lab, ferðast um heiminn til fræðast um venjur og hefðir í skordýramatargerð. Teymið sem samanstendur af Josh Evans, Ben Reade og Roberto Flore ferðaðist m.a til Ástralíu, Mexico, Kenýa, Japan þar sem þeir smakka, elda og ræða við fólk um þennan mikilvæga prótíngjafa sem tveir milljarðar manna neyta reglulega.

 

The Perfect Selfie (FIN) Sýningartími: þriðjudagur 14. mars, kl 10:00

Bekkir: 9. – 10.
The Perfect Selfie er nútímaleg uppvaxta saga finnsku Instagram stjörnunnar Olivia Oras á öld samfélagsmiðla.

The Perfect Selfie fylgist með lífi Oliviu í eitt ár og sýnir augnablikin sem hún deilir ekki á veraldarvefnum. Þessi heimildarmynd er áminning á að glansmynd samfélagsmiðla er ekki alltaf raunin og að við deilum aðeins brota broti af okkar raunveruleika með öðrum. Olivia er með yfir 20.000 fylgjendur, en þekkja aðdáendur hennar hana í raun og veru?

Sýnishorn Nánar

Skráning fyrir bekk: info@nordichouse.is (takmarkað pláss)

Frumsýnd. 2017
Leikstjórar: Maryam Razavi and Jenni Salonen Heimildarmynd
Lengd: 1h 7 min.

Nánar um Nordic Film Festival á http://nordichouse.is/event/syningar-fyrir-skolahopa-2/