8. september 2025

Ráðstefna um barnamenningu 2025

Framlínufólki í menningarstarfi barna er boðin þátttaka í stefnufundi og samtali fagfólks um framtíðarsýn og áherslur í barnamenningu þann 13. nóvember 2025 frá kl. 9–22.
Ráðstefnan fer fram í Golfskálanum Leyni á Akranesi og lýkur með skoðunarferð um Akranes og kvöldverði. Sætaferðir úr Reykjavík.

Nánari upplýsingar um dagskrá og ráðstefnugjald munu birtast fljótlega á heimasíðu List fyrir alla.

Áhugasöm geta einnig skráð sig á info@listfyriralla.is og við sendum ykkur allar upplýsingar um leið og þær berast.