4. janúar 2025

Upptakturinn slær á ný 2025

Upptakturinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna gefur ungu fólki tækifæri til að senda inn eigin tónsmíð og móta hana svo úr verði fullskapað tónverk sem flutt er í Hörpu í samstarfi við nemendur Listaháskóla Íslands og atvinnutónlistarfólk.
Tónleikar Upptaktsins fara fram á Barnamenningarhátíð í Hörpu 11. apríl 2025. Upptakturinn er árviss viðburður á vegum Hörpu sem nú er haldinn í tólfta sinn. Alls hafa 148 tónverk verið flutt eftir um 220 þátttakendur. Árlega eru sendar inn um það bil 90 tónsmíðahugmyndir sem valnefnd velur úr.
Upptakturinn hlaut alþjóðlegu verðlaunin YAMawards fyrir besta tónlistar- og þátttökuverkefnið 2022.

Ungmenni í 5. – 10. bekk geta sent inn hugmyndir að tónsmíðum í því formi sem þau kjósa, á upptöku eða með hefðbundinni eða óhefðbundinni nótnaskrift. Áhersla er lögð á að styðja þau í fullvinnslu hugmyndar, en ungmennin sem komast áfram taka þátt í tónlistarsmiðju með nemendum í skapandi tónlistarmiðlun við Listaháskóla Íslands, auk þess að vinna að útsetningum undir leiðsögn nemenda tónsmíðadeildar. Að þessu ferli
loknu er nýtt tónverk flutt af nemendum LHÍ og atvinnutónlistarfólki, tekið upp og sýnt á RÚV.

Markmið Upptaktsins
Sköpun: Að stuðla að tónsköpun ungs fólks með því að hvetja börn og ungmenni tilþess að semja eigin tónlist.
Skráning: Að aðstoða börn og ungmenni við að fullvinna hugmyndir sínar í vinnusmiðju og varðveita tónlistina.
Flutningur: Að gefa börnum og ungmennum tækifæri á að upplifa eigin tónlist í flutningi fagfólks við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar, Hörpu

Reglur
• Börnum og ungmennum í 5.-10. bekk er heimilt að taka þátt í Upptaktinum og senda inn tónsmíð óháð tónlistarstíl. Þau sem komast áfram taka þátt í tónsmiðjum með nemum úr Listaháskóla Íslands og fagfólki í tónlist.
• Lengd tónverks skal vera 1-5 mínútur að hámarki, annaðhvort einleiks eða samleiksverk fyrir allt að sjö flytjendur.
• Samstarfs-sveitarfélög þurfa að tengja verkefnastjóra við tengilið innan
sveitarfélagsins sem ber ábyrgð á að koma upplýsingum sem viðkomandi fær sendar áfram til skólanna.
• Hugmyndir skulu berast ekki seinna en 21. febrúar á netfangið
upptakturinn@gmail.com með nafni höfundar, aldri, símanúmeri, tölvupóstfangi, grunnskóla, titli verks og verkinu á nótum og/eða MP3 hljóðskrá.

Aðrar upplýsingar
Dómnefnd: Fagfólk situr í dómnefnd og velur 12-13 verk úr innsendum hugmyndum.
Tónsmiðja: Verkin sem komast áfram verða fullunnin í tónsmiðju með
tónsmíðanemum í Listaháskóla Íslandso og fagfólki í tónlist. Tónsmiðjur fara fram í Listaháskóla Íslands og Hörpu.
Tónleikar: Tónverkin flutt á glæsilegum tónlekum í Hörpu 11. apríl 2025 af fagfólki í tónlist. Tónleikarnir eru hluti af Barnamenningarhátíð í Reykjavík.
Tónsköpunarverðlaunin: Öll verkin sem flutt eru á tónleikunum hljóta
tónsköpunarverðlaunin Upptakturinn 2025.
• KrakkaRúv og UngRúv: RÚV er samstarfsaðili Upptaktsins og tekur upp tónleika og viðtöl við þátttakendur.
• Á listveitunni hjá List fyrir alla er hægt að finna upptökur frá tónleikum Upptaktsins frá árunum 2018-2024.

Samstarfsaðilar Upptaktsins
Upptakturinn er á vegum Hörpu í samstarfi við Barnamenningarhátíð Reykjavíkur, Tónlistarborgina Reykjavík, RÚV, Listaháskóla Íslands, Borgarbyggð, Garðarbæ, Kópavogsbæ og Menningarfélag Akureyrar, Mosfellsbæ, Samband sunnlenskra sveitarfélaga og Tónlistarmiðstöð Austurlands.

Nánari upplýsingar
Á vef Upptaktsins má meðal annars sjá stutta heimildarmynd um verkefnið. Sjá nánar á www.harpa.is/upptakturinn. Verkefnastjóri Elfa Lilja Gísladóttir, veitir frekariupplýsingar í síma 6996789 eða í tölvupóst upptakturinn@gmail.com