Ævintýrið lykillinn Tónleikar

Ævintýrið lykillinn

Ævintýrið Lykillinn – með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands  2021

Skólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands 2021 verða 28. og 29. september. Að þessu sinni verða fyrstu tónleikar haustsins í Vestmannaeyjum þar sem spilað verður fyrir nemendur Grunnskólans í Vestmannaeyjum og þaðan verður farið í Hvolsskóla á Hvolsvelli og spilað fyrir nemendur í Rangárþingi eystra. Þann 29. september verða tónleikar í Vallaskóla fyrir nemendur í grunnskólum Árborgar; Vallaskóla, Sunnulækjarskóla, Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri og Stekkjaskóla, Flóaskóla í Flóahreppi og á Hellu fyrir nemendur í Rangárþingi ytra.

Á tónleikunum kemur fram 14 manna klassísk hljómsveit, eins konar smækkuð sinfóníuhljómsveit ásamt sögumanni og stjórnanda og heldur 40 mínútna tónleika fyrir skólabörn.

Efni tónleikanna:

Fyrst er leikið hressilegt þekkt lag, síðan eru hljómsveitin og hljóðfæri hennar kynnt.Þá er leikið verkið Lykillinn sem er eins konar “íslenskur Pétur og úlfurinn”. Sagan segir frá stráknum Benna sem villist í þokunni ásamt hundinum Snata. Þeir lenda m.a. inni í girðingu hjá Geirmundi, mannýgasta nautinu í sveitinni og hitta álfastrák inni í kletti. Allt fer vel að lokum þegar  þokunni léttir og amma og afi finna Benna með hjálp Snata.Verkið er eftir Tryggva M. Baldvinsson og Sveinbjörn I. Baldvinsson og var samið fyrir skólatónleika að beiðni Guðmundar Óla Gunnarssonar hljómsveitarstjóra fyrir skólatónleika. Í lok tónleikanna syngja börnin með hljómsveitinni þekkt íslensk lög sem þau hafa undirbúið með kennurum sínum.

Börnin undirbúa sig fyrir tónleikana með kennurum sínum með því að kynnast sögunni um Lykilinn, teikna myndir við söguna, og læra og æfa lögin sem sungin verða.

Tónleikarnir miða við nemendur á yngsta stigi og miðstigi.

 

 

 

Upplýsingar
Hvað

Sinfóníuhljómsveit Suðurlands

Hvenær

9. mai 2022 - 28. - 29. september 2021

Hvar

Höfn, Kirkjubæjaklautur, Vestmannaeyjar, Rangárþing, Ásahreppur, Árborg og Flóahreppur

Hverjir

Sinfóníuhljómsveit Suðurlands

Aldurshópur

Allur aldur

Aðstaða og tækni