“Hvaðan kemur confetti?” er listfræðsluverkefni Skaftfells 2026 undir handleiðslu Hildigunnar Birgisdóttur myndlistarmanns. Hildigunnur mun fara í alla skóla Austurlands og hluta skóla á Norðausturlandi og leiða vinnusmiðju fyrir 1.-4.bekk, skólunum að kostnaðarlausu. Verkefnið mun ferðast milli Djúpavogs og Öxarfjarðar frá 29. september til 7. október.
Hildigunnur er þekkt fyrir blæbrigðaríka listsköpun sem lítur gagnrýnum augum á hnattræn framleiðslu- og útflutningskerfi og á undarlegt lífshlaup varanna sem þau geta af sér. Í verkum sínum dregur Hildigunnur athygli að hinu smáa, einnota hlutunum sem gjarnan eru fjöldaframleiddir fylgihlutir neyslumenningar: umbúðum, verðmiðum, merkingum og upplýsingakerfum. Hún gefur þessum hlutum ný hlutverk, umbreytir virði þeirra og merkingu algerlega þannig að hægt sé að upplifa þá aftengda uppruna sínum. Um efnistök sín segir Hildigunnur: „Óheppilegar afurðir neysluhyggju eru efniviðurinn og manngerð kerfi eru áhöldin.” Hildigunnur var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2024 með sýningunni Þetta er mjög stór tala.
Um vinnusmiðjuna segir Hildigunnur:
„Við ætlum að fagna lífinu og nágranna okkar, við gerum okkur dagamun. Núorðið hefur það oft í för með sér einhverskonar neyslu eða kaup á einhvejrjum vörum. Við munum hinsvegar endurnýta sem mest við megum og nýta það sem fyrir er. Við ætlum að skreyta okkar næsta umhverfi innblásið af sessunaut okkar! Við fögnum náunganum og gleðjumst yfir samveru. Við skreytum íverustaði okkar og skoðum mismunandi veislumenningu frá ýmsum heimshornum; flugeldar frá kína, pinjötur frá Suður Ameríku og confetti…hvaðan kemur confetti? Við lítum til hinna dýranna á plánetunni. Fuglar eru kannski þekktastir fyrir að skreyta sig og mörgæsir gefa ástvinum skrautlegar gjafir ! Allir þátttakendur skapa skraut og við blásum til veislu!”

Myndlist og smiðja
9. september til 7. október 2026
Austurland
Skaftfell og Hildigunnur Birgisdóttir
1.-4. bekkur
