Milkywhale Tónleikar

Milkywhale

Milkywhale er danshljómsveit skipuð danshöfundinum og söngkonunni Melkorku Sigríði Magnúsdótttur og tónlistarmanninum Árna Rúnari Hlöðverssyni (FM Belfast, Prins Póló). Saman hafa þau skapað röð popplaga eftir textum Auðar Övu Ólafsdóttur rithöfundar, nokkurs konar sjónrænt ferðalag inn í hljóðheima og dansflutning. Þessir epísku tónleikar fjalla meðal annars um smávægilega hluti líkt og ástina, trampólínæfingar, hvali og hvít dýr. Milkywhale hefur hlotið frábæra dóma en sveitin spilaði fyrst opinberlega á Airwaves 2015 en Reykjavik Grapevine lýsti  hljómsveitinni á þennan veg: “Milkywhale er skál af Skittles blönduð átta tvöföldum expressos, toppuð með gleðinni sem fylgir því að fá nýjan hvolp og trampólín á jóladagsmorgni. Milkywhale hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum hérlendis og erlendis og meðal annars spilað á Sónar Reykjavík, Canadian Music Week og Hróarskelduhátíðinni í Danmörku. 

 

Tónlistarmyndband við lagið Birds of Paradise
https://www.youtube.com/watch?v=tamBbhdpCn8

Milkywhale live á tónleikum
https://www.youtube.com/watch?v=yEookKx22Ec

 

Upplýsingar
Hvað

Tónlist - dans

Hvenær

September 2017

Hvar

5. -12. september, Norðurland vestra, Snæfellsnes, Borgarfjörður, Akranes

Hverjir

Melkorka Sigríður Magnúsdóttir
Árni Rúnar Hlöðversson

Aldurshópur

1. - 10. bekkur

Aðstaða og tækni

Hljóðkerfi með bassaboxi og mixer