Stelpur rokka! Tónlist

Stelpur rokka!

Stelpur, trans og kynsegin ungmenni í 8. og 9. bekk í Fellaskóla í Breiðholti  heimsækja nýjar höfuðstöðvar Stelpur rokka! í Fellahverfi. Starfsfólk samtakanna býður upp á smiðju í samstarfi við nokkrar farsælar starfandi hljómsveitir sem eru öflugar fyrirmyndir fyrir konur í tónlist.

Tónlistarflytjendur flytja frumsamið lag sem fjallar um mikilvægt samfélagsmálefni. Flytjendur munu fjalla um tónlistarsköpun sína sem áhrifaríkt afl í aðgerðum í þágu réttlætis. Starfsfólk Stelpur rokka! mun svo halda stutt erindi um sögu tónlistar í pólitískum mótmælahreyfingum og hvernig tónlist hefur einstakan áhrifamátt til breytinga í samfélaginu.

Þátttakendum er svo skipt í um þrjá smærri hópa og skapa, undir leiðsögn tónlistarkvenna og starfsfólks samtakanna, eigin texta og lag, mínútuverk, innblásið af þemunum, sem er flutt í lok smiðjunnar.

Um er að ræða fjölbreyttan og skapandi viðburð. Lögð verður áhersla á að sýna breidd í tónlistarflutningi, frá pönki yfir í þjóðlagatónlist, sem endurspeglar breidd í sögulegri umfjöllun. Ólíkar hljómsveitir og tónlistarkonur munu halda smiðjuna í hvert skipti, en allar eiga þær það sameiginlegt að vera öflugar femínískar fyrirmyndir í tónlist. Stelpur rokka! hafa 8 ára reynslu af því að vinna náið með tónlistarkonum að undirbúningi smiðja fyrir ungmenni. Samtökin hafa einnig mikla reynslu af því að styðja ungmenni með litla tónlistarreynslu í  skapandi tónlistarvinnu í hópum, á stuttum tíma.

Verkefnið mun þjóna sem góð kynning á því starfi sem fram fer í tónlistarmiðstöðinni en Stelpur rokka! munu í vetur vera fyrsta tómstundaverkefnið á Íslandi sem að miðjusetur ungmenni með færri tækifæri (t.d. ungmenni af erlendum uppruna) með því að bjóða upp á gjaldfrjálst starf sem er sérstaklega mótað að þörfum þeirra.

Hér má sjá myndband frá verkefninu Stelpur rokka!: https://vimeo.com/121896071

Hér má sjá myndband frá verkefninu Stelpur rokka.

https://vimeo.com/121896071

 

Upplýsingar
Hvað

Tónlist

Hvenær

Haust 2020

Hvar

Breiðholt

Hverjir

Stelpur rokka!

Aldurshópur

10.bekkur

Aðstaða og tækni

Stelpur rokka!