Vatnið – Upplifunarsýning með Náttúruminjasafninu Listasmiðja

Vatnið – Upplifunarsýning með Náttúruminjasafninu

Vissir þú að það er ótrúlega mikið af vatni á Íslandi?

Vatn birtist okkur meðal annars í ám og fossum, veðri, vötnum og mýrum, í krananum heima, í sundlaugum landsins og í hafinu sem umlykur landið okkar. Mikið af vatninu streymir undir fótum okkar og í því búa pínulitlar lífverur sem erfitt getur verið að koma auga á?

Vatnið er dularfullt, óvænt og forvitnilegt!

Vatnið er 60 mínútna upplifunarsýning Náttúruminjasafns Íslands í samstarfi við hönnunarteymið ÞYKJÓ. Við búum til töfraheim þar sem þátttakendur kynnast vatninu á fjölbreyttan hátt. Við skoðum safngripi Náttúruminjasafnsins, notum öll skilningarvit, framkvæmum tilraunir og sköpum.

Sýningin hentar krökkum í 4.-5. bekk en getur líka gengið fyrir yngri og eldri nemendur í grunnskólum, t.d. í minni skólum. Sýningin verður í boði í Hveragerði og Ölfusi, á Snæfellsnesi og á norðanverðum Vestfjörðum vorið 2027.

Vatnið  er hluti af Icewater verkefninu þar sem yfir 20 stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki taka þátt í og er styrkt af LIFE sjóðnum. Icewater verkefninu er ætlað að auka þekkingu á notkun, eiginleikum og ástandi vatns á Íslandi, að tryggja fumlausa og samhæfða stjórnsýslu í vatnamálum, bæta vatnsgæði, svo sem með úrbótum á fráveitu og hreinsun fráveituvatns, og að fræða almenning og hagaðila um mikilvægi vatns.

 

 

 

 

 

 

Upplýsingar
Hvað

Upplifunar- og listasmiðja

Hvenær

25. apríl - 7. maí 2027

Hvar

Grundarfjörður, Hveragerði, Ísafjörður

Hverjir

Náttúruminjasafnið

Aldurshópur

4. og 5. bekkur

Aðstaða og tækni

Menningarhús