Sjónlistakonurnar Alda Rose Cartwright og Kristín Bogadóttir verða með smiðjur í skólum á norðanverðum Vestfjörðum í október þar sem unnið verður með veðurathuganir og lífríki norður Atlantshafsins sem innblástur. Leitast er við að tengja við nærumhverfi nemendanna og skoða einkenni þess.
Þátttakendur skoða eigin upplifun á veðri og einnig hugtök og manngerð kerfi sem tengjast veðri og veðurlýsingum. Unnið er á skapandi hátt með fjölbreyttan efnivið að tvívíðum og þrívíðum verkum. Skoðuð orð sem við notum um veður og lært að lesa veðurkort. Áhersla er á líffjölbreytileika og vistkerfi hafsins og hvaða dýrategundir standa frammi fyrir ógnunum af völdum loftslagsbreytinga.
Þátttakendur rannsaka sitt eigið nærumhverfi og fjörur, teikna myndir af sjávardýrum og útfæra þær með mismunandi tækni.
Um verkefni Öldu Rose – Íslenskir bænafánar til náttúrunnar
Markmið verkefnisins er að búa til íslenska bænafána í anda Tíbeskra bænafána sem eiga að bera óskir og bænir um velvilja og samkennd til veraldarinnar.
Tilgangur íslensku fánanna er að bera óskir og bænir um velvilja og farsældar til móður náttúru, náttúrunnar og umhverfisins á okkar heimaslóðum sem og á slóðum Norður Atlantshafsins.
Þátttakendur velta fyrir sér ástandi náttúrunnar og vistverum dýrategunda á þessum slóðum.
Hvað er það sem ógnar náttúrunni, hvaða dýr eru í útrýmingarhættu og hvernig væri hægt að sporna við hrakandi ástandi náttúrunnar á Norðurhjara veraldar? Þátttakendur eru hvattir til þess að setja á fána ósk eða bæn um velvilja til náttúrunnar. Hver og einn þátttakandi hannar sinn eigin fána með fjölbreyttum aðferðum eins og t.d. þrykkja, mála, teikna og sauma. Í anda móður náttúru og sjálfbærinnar verður reynt að nýta eins mikið af notuðu efni til þess að búa til fánalengju. Á fánanna má setja orð og möntrur og/eða teikna eða mála náttúru fyrirbrigði á þá eftir því sem hver og einn vill koma á framfæri. Hver og einn fáni verður einstakur og ber ósk eða bæn einstaklingsins til móður náttúru.
Alda Rose er myndlistarkona og Kristín er ljósmyndari. Þær eru báðar með Master í listkennslu frá LHÍ og hafa tekið þátt í LÁN – listrænu ákall til náttúrunnar. Þær eru ástríðufullir náttúruunnendur og tvinna hér saman listræn verkefni og tengja við náttúruna, nærumhverfið og samfélagið á Vestfjörðum.
Kristín Bogadóttir hefur sjálf unnið listrannsókn, þar sem hún tók ljósmyndir og viðtöl við veðurathugunarfólk á átta stöðum á landinu. Verkið Dálítill sjór var sýnt í Þjóðminjasafni Íslands í maí 2016. Kristín býður upp á vinnustofur þar sem nemendur þjálfast í læsi á umhverfi sitt. Hún leggur áherslu á að markvisst sé unnið með málefnið í skólakerfinu og þá ekki síst í gegnum listir sem getur svo stuðlað að auknu næmi fyrir umhverfi og náttúru.
Alda Rose Cartwright er myndlistarmaður með BFA frá Academy of Art University frá San Francisco þar sem hún lagði áherslu á grafík og málun. Náttúran og lífríkið hefur ávallt verið innblástur Öldu í sinni listsköpun og undanfarin ár hefur hún unnið með hugmyndir um hið hverfula lífríki á norðurslóðum. Alda útskrifaðist einnig frá LHÍ með M.art.ed í listgreinakennslu og hefur síðan haldið ótal smiðjur á eigin vegum, söfnum og í gegnum verkefnið LÁN á vegum Reykjavíkurborgar. Í list sinni fjallar hún um náttúrufyrirbæri í samhengi minninga sem/og áhrif og samspil manna við náttúruna.
Alda hefur mest unnið vatnslita-, olíu- og grafíkverk og leggur áherslu á eflingu á umhverfisvitund barna og nýtir einnig mismunandi grafík aðferðir í kennslu.
Listasmiðjur
25.- 29. október 2021
Súðavík, Ísafjörður, Bolungarvík, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri
Kristín Bogadóttir
Alda Rose Cartwright
Allur aldur
Myndlistarstofa, skæri, þekjulitir, vatnslitir, valsar, þrykklitir og pappír o.fl.