21. desember 2023

Hátíðarkveðja List fyrir alla

List fyrir alla þakkar fyrir frábært samstarf árið 2023.

Í ár hafa um 23.000 börn í 1. – 10. bekk um allt land fengið að njóta viðburða á vegum List fyrir alla sem voru einstaklega fjölbreyttir.

Við þökkum okkar frábæra listafólki og liststofnunum sem miðla af þekkingu sinni til barna og ungmenna um allt land.
Við þökkum einnig öllum börnum, starfsfólki og kennurum grunnskólanna hjartanlega fyrir frábærar viðtökur.

Við tökum flugið á nýju ári þegar Siggi og Keli verða með Múrbalaslátt í Hafnarfirði,
Leikhópurinn Lotta ferðast um Suðurlandið með leikritið sitt Pínulitla Mjallhvít.
Listalestin í samstarfi við Listaháskóla Íslands fer á Suðurland og verður með smiðjur fyrir Víkurskóla, Hvolsskóla, Grunnskólann Hellu og Laugalandsskóla í Holtum. 

Hægt er að skoða  nánari upplýsingar um hvern viðburð á heimasíðu List fyrir alla undir listviðburðir.

Við óskum ykkur gleðilegrar hátíðar og hlökkum til frekara samstarfs á næsta ári.

Kær kveðja,
List fyrir alla