Múrbalasláttur með Sigga og Kela Tónlist

Múrbalasláttur með Sigga og Kela

Ertu sífellt er að tromma á húsgögnin heima hjá þér? Kannski á eldhúsborðið, skólatöskuna, eða pottana og pönnurnar í eldhúsinu?
Ef svo er, þá er þetta eitthvað fyrir þig. Trommuleikararnir Sigurður Ingi Einarsson og Hrafnkell Örn Guðjónsson stýra stórskemmtilegri tónlistarsmiðju þar sem aðalhljóðfærið er múrbali.
Allir þátttakendur fá múrbala sem þeir binda utanum sig og tvo kjuða. Síðan er einfaldlega talið í. Taktar, break, grúv og hreyfingar, auk þess sem skoðuð verða þau fjölmörgu hljóð sem hægt er að ná úr þessum ósköp venjulegu svörtu plastfötum. Þær leyna á sér! Í lok smiðjunnar verður flutt kröftugt tónlistaratriði þar sem hlýða má á afraksturinn.

Upplýsingar
Hvað

Múrbalasláttur

Hvenær

Febrúar 2024

Hvar

Hafnarfjörður

Hverjir

Sigurður Ingi Einarsson
Hrafnkell Örn Guðjónsson

Aldurshópur

Miðstig

Aðstaða og tækni

Gott pláss fyrir 130 krakka með múrbala