Karla og Nordahl Kvikmyndir

Karla og Nordahl

Rússneska stuttmyndin Karla og Nordahl er ætluð börnum frá 6 ára aldri. Hér gefur leikstjórinn Elisabeth Aspeli innsýn í líf eigin barna.

Karla er sex ára og á stóra bróður að nafni Nordahl. Af hverju heldur Karla að hann sé bæði stóri bróðir hennar og litli bróðir hennar? Við fáum innsýn í veröld Körlu og hvernig það er fyrir hana að eiga stóra bróður sem glímir við námsörðugleika.

Vönduð barna- og unglingadagskrá RIFF er sett saman fyrir yngstu kynslóðina til að kynna fyrir þeim kvikmyndalistina og gefa þeim kost á að sjá bíómyndir alls staðar að úr heiminum. Bæði er um að ræða kvikmyndir í fullri lengd svo og stuttmyndir sem hæfa hverjum aldursflokki fyrir sig. Myndirnar eru ætlaðar börnum og unglingum frá 4 til 16 ára.
Í tilefni breyttra aðstæðna í samfélaginu býðst skólum um land allt flott stuttmyndaprógramm RIFF í samvinnu við List fyrir alla. Fylgir sérstakt kennsluefni með fyrir kennarara tengt myndunum.
Sýningar verða einnig í Norræna húsinu og þá talsettar af leikurum jafnóðum.

 

 

 

 

Upplýsingar
Hvað

Karla og Nordahl - Stuttmyndastund

Hvenær

7.-9. september 2020

Hvar

Norræna Húsið og skólar landsins

Hverjir

RIFF Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík.

Aldurshópur

1. - 5. bekkur

Aðstaða og tækni