Skólasýningar á Alþjóðlegri Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík 2023 Kvikmyndir

Skólasýningar á Alþjóðlegri Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík 2023

Skólasýningar á Alþjóðlegri Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík 2023

Í tilefni af tíu ára afmæli hátíðarinnar bjóðum við tíu kvikmyndir – níu talsettar og ein með íslenskum texta, til allra grunnskóla á landsbyggðinni, í samstarfi við kvikmyndamiðstöð Íslands og List fyrir alla.

Kvikmyndunum fylgir rafrænt kennsluefni eftir kvikmyndafræðinginn Oddnýju Sen sem séð hefur um kvikmyndafræðslu í Bíó Paradís um árabil.

Kennarar senda tölvupóst á netfangið bioparadis@bioparadis.is og velja mynd, fá sendan aðgangshlekk á kvikmyndina inn á Heimabíó Paradís, ásamt hlekk á rafrænt kennsluefni á Dropbox. Hlekkirnir eru virkir frá 28. október- 5. nóvember og því er gluggi til kennslu virka skóladaga 30. október – 3. nóvember.

Þeir skólar sem eru með aðgang að kvikmyndahúsi með stafrænum sýningarbúnaði, geta óskað eftir stafrænu sýningareintaki fyrir kvikmyndahús, takið það þá fram í tölvupósti og við getum sent ykkur DCP af myndinni.

Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á netfangið bioparadis@bioparadis.is

Skráningar þurfa að berast fyrir fimmtudaginn 26. október.
Vinsamlega gefið upp nafn og netfang kennara, auk fjölda og aldur barnanna.

Dagskrá skólasýningana hér:

LEIKSKÓLAR

ERNEST OG CELESTÍNA | 3+

(2012 / 80 mín / Frakkland / íslenskt talsetning)

Kvikmynd um óvenjulegt og sérstakt vinasamband músarinnar Celestínu og bjarnarins Ernest. Myndin er unnin úr vatnslita hreyfimyndum og hefur ferðast á margar af helstu kvikmyndahátíðum heims en hún er byggð á barnabókaseríu eftir teiknarann og höfundinn Gabrielle Vincent. Kvikmyndin er talsett á íslensku og er fyrir alla aldurshópa. Nánar

 

ANDRI OG EDDA BÚA TIL LEIKHÚS | 3+

(2017 / 81 mín / Noregur / íslenskt talsetning)

Andri og Edda fara í leikhús með leikskólanum sínum … en þá langar þau að búa til sína eigin leiksýningu! Sem þau og gera! Dásamleg barnakvikmynd og sjálfstætt framhald af Andri og Edda verða bestu vinir sem sýnd var á fyrstu Alþjóðlegu Barnakvikmyndahátíðinni í Reykjavík! Nánar

 

ANDRI OG EDDA VERÐA BESTU VINIR | 3+

(2013 / 78 mín / Noregur / íslensk talsetning)

Þegar Andri byrjar á leikskóla kynnist hann Eddu en þau verða bestu vinir. Tuskudýrin þeirra, ljónsunginn og fröken Kanína,verða einnig vinir og þegar annað þeirra týnist á slökkvistöðinni lenda þau Andri og Edda í ýmsum ævintýrum. Myndin  er talsett á íslensku. Nánar

GRUNNSKÓLAR

 

1.- 4. BEKKUR

APASTJARNAN | ALLUR ALDUR 

(2021 / 75 mín / Svíþjóð, Noregur, Danmörk / íslenskt talsetning)

Jonna er ung munaðarlaus stúlka. Einn daginn kemur Górilla á heimilið þar sem hún býr og vill ættleiða hana. En það tekur smá tíma fyrir Jonnu að venjast nýju móður sinni en lífið verður gott. Þangað til að yfirvöld ógna nýju fjölskyldunni…  Hjartnæm saga sem tilnefnd var til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2021 sem besta teiknimyndin. Myndin er talsett á íslensku. Nánar

 

DOKTOR PROKTOR OG PRUMPUDUFTIÐ | 6 +

(2014 / 85 mín / Noregur / íslenskt talsetning)

Doktor Proktor og Prumpuduftið, sem byggð er á samnefndri metsölubók norska rithöfundarins Jo Nesbø, er frábær ævintýra- og gamanmynd sem gerist í heimi þar sem viðurstyggileg furðudýr búa í holræsunum og prump eru nógu öflug til þess að skjóta manni út í geim. Myndin er talsett á íslensku! Nánar

 

DOKTOR PROKTOR OG TÍMABAÐKARIÐ | 6+

(2015 / 95 mín / Noregur / íslenskt talsetning)

Hinn ástsjúki Doktor Proktor ferðast aftur í tímann í örvæntingarfullri viðleitni til þess að breyta sögunni. Hann vill reyna koma í veg fyrir brúðkaup sinnar heittelskuðu Juliette og hins hallærislega Kládíusar.

Doktor Proktor og tímabaðkarið er stórskemmtileg ævintýramynd fyrir börn á öllum aldri um þrjá vini sem sem leggja allt í sölurnar til þess að bjarga mannkynssögunni og ástinni! Þetta er önnur myndin sem byggð er á vinsælum barnabókum Jo Nesbø um Doktor Proktor og vini hans! Myndin er talsett á íslensku! Nánar

 

ANTBOY : RAUÐA REFSINORNIN | 6+

(2014 / 84 mín / Danmörk / íslenskt talsetning)

Antboy á í vanda, þar sem hann er ástfanginn af bekkjarsystur sinni, Idu, sem vill ekkert með hann hafa. Málin flækjast þegar Rauða refsinornin verður síðan ástfangin af Antboy en hann hefur nú þegar valið Idu. Eftir að vera hafnað af ástinni sinni, snýst Rauða refsinornin í hefndarhug og fær Pödduna, Frú Gæmelkrå og vondu tvíburana til liðs við sig. Myndin er talsett á íslensku! Nánar

 

5.-7. BEKKUR

NELLÝ RAPP – SKRÍMSLASPÆJARI | 9+

(2020 / 93 mín / Svíþjóð / íslenskt talsetning)

Sannkölluð ævintýramynd þar sem draugar, vampírur og varúlfar leika lausum hala! Nellý er ung stúlka sem fer í haustfríinu sínu til frænda síns Hannibal ásamt hundinum sínum London. En þá breytist allt því frændinn er skrímlaspæjari! Myndin er talsett á íslensku. Nánar

 

HVAR ER ANNE FRANK | 9+

(2021 / 99 man / Belgía / Sýnd með íslenskum texta)

Byggð á dagbók Anne Frank teflir Ari Folman hér fram kvikmynd byggða á sögu hennar þar sem sögufrásögnin hefur hlotið gríðarlega athygli, en leikstjórinn er þekktastur fyrir kvikmynd sína Waltz with Bashir sem hann hlaut Óskarsverðlaunin fyrir sem bestu erlendu myndina. Nánar

 

MUGGUR OG GÖTUHÁTÍÐIN | ALLUR ALDURSHÓPUR

(2019 / 80 mín / Danmörk / íslenskt talsetning)

Muggur og götuhátíðin er stórkostlega skemmtileg teiknimynd sem talsett hefur verið á íslensku!  Muggur er glaður strákur en einn daginn breytist líf hans þegar foreldrar hans ákveða að skilja. Mun hin árlega götuhátíð nágrannana mögulega bjarga fjölskyldunni hans?

Upplýsingar
Hvað

Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík- skólasýningar á landsbyggðinni

Hvenær

 28. október - 5. nóvember 2023

Hvar

Um land allt

Hverjir

Bíó Paradís
List fyrir Alla og Kvikmyndamiðstöð Íslands

Aldurshópur

1.-10.bekkur

Aðstaða og tækni

Hlekkir á talsettar kvikmyndir ásamt aðgengi að rafrænu kennsluefni.