BRUM er hljóðganga í skógi. Þátttakendur hlusta sig inn í skóginn og upplifa tengsl trjánna hvert við annað og manneskjuna. Hvernig er skógurinn í þínu nærumhverfi og hversu vel tekur þú eftir trjánum í kringum þig , veistu hvað þau heita? Hefur þú faðmað tré? Í BRUM gefst þér tækifæri til að fara inn fyrir börkinn og kynnast trjánum á áður óþekktan máta.
Trén í skóginum eru flytjendur verksins og leiða áhorfendur í gegnum ferðalag þar sem þau miðla djúpri vitneskju tilvistar sinnar sem á ævintýralegan hátt endurspegla samfélag manna. Áhorfandinn leggur af stað í leiðangur einsamall eða í félagsskap náinna ferðalanga. Í BRUM gefst áhorfandanum tækifæri á að hverfa tímabundið úr mannmiðjaðri hugsun og slaka inn í augnablikið sem skógurinn hefur uppá að bjóða í hvers kyns veðráttu sem ríkir. Trén hafa áhrif á skynjun áhorfandans í skóginum, mótandi og stýrandi, til dæmis með því að láta áhorfandann leika, snerta, tala og syngja,
BRUM er hljóðganga í skógi.
Haustið 2022
Selfoss -Hellisskógur - Reykholt
Kara Hergils Valdimarsdóttir
Andrea Vilhjálmsdóttir
1. - 10. bekkur
Aðgegni að grónu landsvæði, trjálundi eða skógi þar sem hægt að setja verkið upp.