Sirkuslistafélagið Hringleikur býður í samstarfi við BRAS og List fyrir alla upp á sirkusnámskeið fyrir grunnskólabörn á Austurlandi. Nemendur fá innsýn í heim sirkuslistanna, hvað í því felst að starfa sem sirkusfólk og rætt um hvað geti tilheyrt þessari áhugaverðu listgrein. Hvað er eiginlega sirkus? Farið verður í grunnþætti ólíkra sirkusgreina, s.s. djöggls, jafnvægislista og félagafimleika, og sérstaklega skoðað hvernig sirkusgreinarnar megi nota á ólíkan hátt og í fjölbreyttum myndum, á sviði og í leik. Námskeiðið miðar að því að efla þætti eins og líkamsvitund, leikgleði, samvinnu og traust til sjálfs sín og annarra. Kennarar eru þau Bjarni Árnason og Eyrún Ævarsdóttir, sem hafa viðamikla reynslu sem sirkuslistafólk og -kennarar bæði hérlendis og erlendis. Þau ferðast með sýninguna Shjówmenn um landið haustið 2026.
Sirkúslistir
21. - 25. september 2026
Austurland
Hringleikur
Sláturhúsið Menningarmiðstöð
Bjarni Árnason
Eyrún Ævarsdóttir
Allur aldur






