Notum íslenskuna óhikað! Skapandi íslenska

Notum íslenskuna óhikað!

Ég var lélegur í íslensku í skóla, fékk lágar einkunnir og fannst ekki gaman að læra. Þrátt fyrir það hef ég gert íslensku að aðal starfinu mínu, að semja texta, syngja og leika á íslensku. Ég hef notið mjög þess að heimsækja unglinga í skólum og tala um íslensku og hvetja unglinga til að nota hana óhikað! Þá ræði ég spurningar eins og:

“Er íslenskan að deyja út?”

“Hverjir voru allir þessir gömlu kallar sem við erum að læra um?”

“Er ekki bara miklu betra að tala bara ensku?”

“Hræðslan við að skryfa vitlaust”

Allt þetta og meira verður rætt á þessum létta fyrirlestri um íslensku, málvenjur, skáldskap og svo margt, margt fleira!

Upplýsingar
Hvað

Skapandi íslenska

Hvenær

19. - 29. október 2026

Hvar

Árborg og Ölfus

Hverjir

Kristinn Óli S. Haraldsson

Aldurshópur

9. bekkur

Aðstaða og tækni

Aðstaða fyrir nemendur í sætum nálægt Króla og skjávarpi