BIG BANG er tónlistarhátíð fyrir unga áhorfendur þar sem börnum er boðið uppá fjölbreytta efnisskrá sem samanstendur af tónleikum, innsetningum og smiðjum. Tónlistarfólk leitar bestu leiða til að kynna tónlist fyrir börnum auk þess að deila sviðinu með börnunum.
BIG BANG fer fram víðsvegar um Evrópu er stór menningarhús umbreytast í tónlistarhús í þágu barna. Hátíðin í Reykjavík er unnin í samstarfi við Barnamenningarhátíð í Reykjavík, Hörpu, List fyrir alla, Tónlistarborgina Reykjavík og LHÍ.
Nánar um BIG BANG
BIG BANG er ævintýraleg evrópsk tónlistarhátíð fyrir unga áheyrendur sem var stofnuð árið 2010 af sex evrópskum samstarfsaðilum og byggir á arfleifð tónlistarhátíðarinnar OORSMEER sem hafði verið haldin í evrópskum borgum síðan árið 1995. Með stuðningi Evrópusambandsins varð skipulagt samstarf á milli menningarmiðstöðva frá mismunandi svæðum í Evrópu að veruleika og er hátíðin haldin ár hvert í fjölda evrópskra borga. Allir samstarfsaðilar eiga það sameiginlegt að vilja auka aðgengi barna að tónlist. Frumkvæðið að þessu samtali spratt út frá sameiginlegri þörf til að stuðla að auknum listrænum gæðum í annarri tónlist en dægurlagatónlist fyrir evrópsk börn. Árið 2015 hlaut hátíðin hin virtu EFFE verðlaun. Árið 2018 hlaut verkefnið fjögurra ára stuðning í gegnum Creative Europe áætlun Evrópusambandsins og nú í febrúar var hátíðin haldin í fyrsta skipti utan Evrópu, nánar tiltekið í Ottawa, Kanada. Fastir samstarfsaðilar eru BOZAR (Brussel, Belgíu), De Bijloke (Gent, Belgíu), DeSingel International Art Campus (Antwerpen, Belgíu), Centro Cultural de Belém (Lissabon, Portúgal), Instituto de la Cultura y las Artes de Sevilla (Spáni), Culturalnassis (Aþenu, Grikklandi), Opéra de Lille (Frakklandi), Wilminktheater og Muziekcentrum Enschede (Hollandi) og nýir samstarfsaðilar eru The Arch (Dublin, Írlandi), Eesti Kontsert (Tallinn, Eistlandi), Opéra de Rouen Normandí (Frakklandi), MotorMusic (Mechelen, Belgíu) og nú býðst List fyrir alla í samstarfi við Reykjavíkurborg/Barnamenningarhátíð, Tónlistarborgina Reykjavík og Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhús að vera með árin 2019-2022. Það er okkur mikill heiður að vera þátttökuaðili ásamt þessum faglegu og reynslumiklu samstarfsaðilum, auk þess sem hverri hátíð fylgir fjármagn, stuðningur, reynsla og þekking frá samstarfsaðilum og Creative Europe.
Verkefnið leggur áherslu á tónlistarfólk og tónskáld sem líta á reynslu sína og tónlistarsköpun sem ævintýri. Verkefnið er ætlað viðburðahöldurum sem vilja takast á við nýjar leiðir til að gera tónleikasókn allra barna að sterkri og ríkri reynslu og til að þeir sem starfa innan menningargeirans leggi áherslu á að ná til nýrra áhorfenda.
Markmið BIG BANG
Tónlistarhátíð
21.nóvember 2021 og apríl 2022
Harpa
Tónlistarfólk
Yngsta stig