dAzzleMAZE Dans

dAzzleMAZE

dAzzleMAZE er upplifunarsýning fyrir allra yngstu áhorfendurna og hentar einnig skynsegin börnum. Í sýningunni sem er í senn dansverk og innsetning fögnum við veru okkar í heiminum og göngum inn í rými þar sem við tökum glöð á móti því óþekkta. Hér hvílir tíminn í sjálfum sér og dýpkar. Heillaheimur býður upp á fjölþætta skynjunarupplifun og hvatt er til forvitni, könnunar, slökunar og íhugunar. Í þessu rými er engin rétt eða röng hegðun og áhorfendum býðst að njóta uppákomunnar á eigin forsendum. Gestir mega koma inn í rýmið þegar þeir eru tilbúnir, fara út og koma aftur inn eins og hentar. Til þess að auka á sameiginlega upplifun er gestum boðið að velja sér og klæðast búningum í anddyri sem kallast á við búninga dansaranna.

Afslöppuð sýning fyrir börn með sérþarfir.

Upplýsingar
Hvað

Dans og upplifnun

Hvenær

18.júní 2022

Hvar

Tjarnabíó

Hverjir

Dalija Acin Thelander

Aldurshópur

1. - 3. ára

Aðstaða og tækni

Óháð tungumáli, hentar heyrnaskertum og sjónskertum. Í Tjarnarbíói er gott aðgengi fyrir hjólastóla.