Góðan daginn, faggi. Leiksýning

Góðan daginn, faggi.

Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir vandasamann leiðangur um innra líf sitt og fortíð og samtíma rekst hann á rætinn hommahatara á óvæntum stað.

Sýningin er berskjaldandi leiðangur um skömm og mennsku og einlægt samtal við drauminn um að tilheyra. Hlátur, grátur og glæný söngleikjatónlist sem lætur enga ósnortna.

Góðan daginn, faggi er eins manns heimildasöngleikur unnin upp úr dagbókum Bjarna Snæbjörnssonar frá yngri árum. Höfundarnir eru hinsegin fólk sem öll ólust upp á landsbyggðinni, Bjarni Snæbjörnsson leikari frá Tálknafirði, Axel Ingi Árnason tónskáld úr Eyjafjarðarsveit og Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri frá Hrísey. Í sköpunarferli sýningarinnar ræddu höfundar jafnframt við ótal hinsegin manneskjur og stóðu reglulega fyrir opnum leiklestrum og kynningum í tengslum við Hinsegin daga og í samstarfi við Samtökin ‘78.

Góðan daginn, faggi var frumflutt á forsýningu á Tálknafirði í júlí 2021, heimabæ Bjarna og frumsýnt í Þjóðleikhúskjallaranum á Hinsegin dögum 2021. Verkið hefur fengið einróma lof gagnrýnenda og leikhúsgesta og nú eftir yfir 40 uppseldar sýningar og mikilvæg og krefjandi samtöl við fjölbreyttan hóp áhorfenda er ljóst að verkið á brýnt erindi við íslenskt samfélag.

Verkið tekst á við fyrirbæri eins og skömm og innhverfa fordóma með húmor og einlægni að vopni. Það minnir menningarþjóð sem státar sig af víðsýni, virðingu mannréttinda og fordómaleysi á að hugsa til þeirra félagslegu og sálrænu afleiðinga sem það hefur fyrir einstaklinga alast upp í samfélagi sem er sniðið að öðrum en þeim. Hvernig það er að tilheyra aldrei að fullu heldur eiga alltaf á hættu að þurfa að verja sig eða berjast fyrir tilverurétti sínum.

Höfundar: Bjarni Snæbjörnsson og Gréta Kristín Ómarsdóttir
Leikstjóri: Gréta Kristín Ómarsdóttir
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson (í ÞLH, ath uppfærslu á aðlögun)
Stílisti: Eva Signý Berger
Sviðshreyfingar: Cameron Corbett
Framkvæmdastjóri og aðstoðarmaður leikstjóra: Hjalti Vigfússon
Flytjendur: Axel Ingi Árnason og Bjarni Snæbjörnsson

Hér má finna titillagið á spotify

https://open.spotify.com/album/6eWWVvoN4XW0k3KI855Zcb?go=1&sp_cid=1c8e22c8358590c408f9d9a55a5113e6&utm_source=embed_player_m&utm_medium=desktop&nd=1

Umfjöllun:

„Drepfyndin var endurgerð á auglýsingu sem Bjarni lék í en þótti of „mjúkur“ og var á endanum skipt út fyrir sér „harðari“ leikara. Drepfyndin og sorgleg, eins og fleiri árekstrar hans við hið gagnkynhneigða norm…“
MBL, ÞT

„Góðan daginn faggi er ekki innantómt grín, heldur vel heppnað persónulegt heimildaleikhús sem skilur margt eftir hjá áhorfandanum“
RÚV-Menning, SB

„Bjarni á hrós skilið fyrir að takast á við þetta krefjandi verk­efni og leggja sjálfan sig að veði á þennan máta, ber­skjaldaður en á­vallt fullur hlýju. „
FBL, SJ

 

 

Upplýsingar
Hvað

Leiksýning og hinseginfræðsla

Hvenær

26. september 2022

Hvar

Landið

Hverjir

Leikhópurinn Stertabenda í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

Aldurshópur

9. - 10. bekkur

Aðstaða og tækni