Danshópurinn Bunnyverse Company setur á svið Kanlínudans, dansleikhúsverk sem fjallar um tilfinningar, samskipti og ólík mörk. Í verkinu birtast hugsanir sem dansmynstur ólíkra tilfinninga í spennuþrunginni framvindu milli tveggja kanína.
Kanínurnar Leynir og Læða, með undirspili DJKanínu, leika sér, dansa og leita leiða til að tengjast hvor annarri í gegnum karaktersköpun og dans.
“Leynir og Læða snúast hvor um aðra og dansa á línunni. Þeim finnst frábært að leika saman, en stundum gleymir Leynir línunum og stundum gleymir Læða gleðinni í leit að réttu leiðinni. Læða er ferköntuð og hröð kanína. Leynir er rólegri, fylgir flæðinu og er ekki eins upptekinn af línudansinum. Stundum er gaman og línurnar eru skýrar, en stundum verða þær óljósar og samskiptin í móðu. Kanínurnar eru fastar saman á þessum reiti, í þessari framvindu. Hvernig mun þetta fara? Geta þær dansað þennan línudans saman?”
Leynir og höfundur: Leevi Mettinen
Læða og höfundur: Sóley Ólafsdóttir
DJKanína: María Kristín Jóhannsdóttir

Screenshot
Dansleikhús
Apríl 2026
Ráðhús Reykjavíkur
María Kristín Jóhannsdóttir
Leevi Mettinen
Sóley Ólafsdóttir
1. - 2. bekkur
