Draugurinn Reyri fer með áhorfendum á vit löngu látinna tónskálda og kynnir þau fyrir tónlist þeirra. Hann ásamt blásarakvintettinum Norð-austan leiða þetta tónlistarleikhús sem er í senn ógnvekjandi en einnig ótrúlega fyndið og skemmtilegt.
Tónlist og leiklist tvinnast hér saman með skýrum hætti. Efnið er sett fram á leikrænan máta, með sögumanni. Allir þátttakendur (hljóðfæraleikarar og söngvari eru í hlutverkum). Viðfangsefnið er hins vegar tónlist. Draugurinn ferðast til baka í tímann og kemst í kynni við löngu látin tónskáld og fær að heyra tónlist þeirra. Myndlist kemur líka við sögu þar sem myndefni verður varpað á skjávarpa.
Draugurinn Reyri: Árni Beinteinn Árnason
Blásarakvintettinn Norð-austan:
Flauta: Hildur Þórðardóttir
Óbó: Gillian Haworth
Klarinett: Vigdís Klara Aradóttir
Fagott: Dagbjört Ingólfsdóttir
Horn: Ella Vala Ármannsdóttir
Höfundur: Pamela de Sensi
Leikstjórn: Vala Fannell
Samstarfsaðilar:
MAK
List fyrir Alla
Sóknaráætlun Norðurlands Eystra
Barnamenningarsjóður
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com
Sögur af draugnum Reyra - Tónlistarleikhús með hrekkjavökuþema
7. - 8. nóvember 2022
Hof
Tónlistarfélag Akureyrar - Töfrahurð - MAK
Yngsta stig
MAK