Músík og sögur Tónlist

Músík og sögur

Átti Bach 20 börn?

Seldi Paganini Skrattanum sál sína fyrir snilldina?
Var Chopin franskur eða pólskur, rómantískur eða klassískur?
Voru bara karlar sem sömdu músík?
Er hægt að spila „banjó og fiðla“ á fiðlu og gítar?
Hvað er banjó?
Hver var þessi Dimmalimm?

Svar við þessum og öðrum spurningum fást í dagskránni „Músík og sögur“ sem flutt er af sögumanni/leikara, fiðluleikara og gítarleikara, allt atvinnumönnum á sínu sviði.

Dagskráin tekur um 30-40 mínútur og og eru áheyrendur leiddir um hina ýmsu kima tónlistarinnar með tali og tónum.
Á milli þess sem tónlistarmennirnir flytja tónlist víðs vegar frá kynnir sögumaður tónskáldin og segir sögur og ævintýri þeim tengdum.
Tónlistin er ætluð öllum aldurshópum og sögurnar gætu breyst eða orðið mismunandi miðað við aldur barnanna hverju sinni.

Laufey Sigurðardóttir og Páll Eyjólfsson hafa starfað saman frá árinu 1986.  Þau hafa haldið tónleika víðs vegar um landið sem og erlendis og gert upptökur fyrir útvarp og sjónvarp. Nú bætist Esther Talia Casey leikkona í hópinn og saman ætla þau að segja sögur í tónum og tali.

Laufey og Páll hafa komið við í flestum grunnskólum landsins en nú fá nemendur á Suðurnesjum tækifæri til að kynnast þeim.

 

 

Upplýsingar
Hvað

Músík og sögur

Hvenær

10. - 17. nóvember 2017

Hvar

Suðurnes

Hverjir

Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari
Páll Eyjólfsson gítarleikari
Esther Talia Casey leikkona

Aldurshópur

1. - 10. bekkur

Aðstaða og tækni

Rými fyrir tónleikahald.