Listalest LHÍ Listir

Listalest LHÍ

Í listkennsludeild Listaháskóla Íslands er saman kominn hópur fólks úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustum samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum.

Listalest LHÍ samanstendur af hópi listkennslunema og hefur sá hópur stækkað og dafnað síðustu ár. Nú svo komið að Listalestin mun stoppa á tveimur stöðum þetta vorið; annar helmingur Listalestarinnar mun ferðast til Skagafjarðar og halda þverfaglegar vinnusmiðjur fyrir unglingastigið í Varmahlíðarskóla, Grunnskólanum austan Vatna og Árskóla sem áhersla verður lögð á samruna listgreina. Hinn helmingur Listalestarinnar mun svo halda þverfaglegar vinnusmiðjur með unglingastiginu í Kópavogsskóla og Kársnesskóla í Kópavogi.

Verkefnið kemur til með að mótast og þróast í samstarfi við listgreinakennara sem og aðra kennara í viðkomandi skólum og munu nemendur listkennsludeildar vinna í samstarfi við þá.

Afurðir vinnusmiðjanna verða svo verða settar upp sem listasýningar undir leiðsögn sýningarstjóranna Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur í Skagafirði og Jóní Jónsdóttur í Kópavogi.

Hér má sjá umfjöllun um Listalestin frá því hún var á Egilsstöðum haustið 2018:

Upplýsingar
Hvað

Listalest LHÍ

Hvenær

27. - 28. apríl

Hvar

Skagafjörður

Hverjir

Listkennsludeild LHÍ
Listgreinakennarar

Aldurshópur

8.-10.bekkur

Aðstaða og tækni

Vinnustofur