Á skólatónleikunum verður farið í litríkt ferðalag í tali og tónum um sögu tréblásarafjölskyldunnar eftir Richard Goldfaden. Einnig verður flutt hin sígilda saga um Pétur og úlfinn. Pétur og úlfurinn er þekktasta tónlistarverk sem samið hefur verið sérstaklega fyrir unga áheyrendur og jafnframt ein besta leiðin til að kynna tréblásarahljóðfæri fyrir börnum.
Elfar Logi Hannesson fer með hlutverk sögumanns og leiðir unga gesti í gegnum verkin, en blásarakvintett Töfrahurðar sér um tónlistina
Hér má finna nánari upplýsingar um þá hljóðfærlaleikara og leikrar sem skipta Töfrahurðina
Listamannahópur Töfrahurðar CV 2026

Tónlistarleikhús
Október 2026
Vestfirðir
Elfar Logi Hannesson
Pamela De Sensi
Eydís Franzdóttir
Ármann Helgason
Joseph Ognibene
Kristín Mjöll Jakobsdóttir.
1. - 4. bekkur






