Jóladraumar
Íslenski dansflokkurinn kynnir Jóladrauma – dansverk eftir Ingu Maren Rúnarsdóttur
Jólin nálgast. Dimmir dagar faðma okkur, snjókorn falla og kertaljós lýsa leiðina að jólaskapinu. Ung stúlka verður forvitin um hinn dularfulla jólaanda og eltir ljósin í leit sinni að sannri merkingu hans. Á vegferð sinni hittir hún töfrandi fyrirbæri, frekar fúlan jólakött, hræddan héra og illa lyktandi skötu. Nýju vinirnir og uppáhalds tréð hennar í skóginum hjálpa henni að átta sig á því að jólaandinn býr innra með henni og góðvild getur fengið hvern sem er til að brosa.
Jóladraumar er ævintýraleg aðventustund fyrir alla fjölskylduna.
Að sýningu lokinni er slegið upp skemmtilegu jólaballi þar sem gestir dansa í kringum lifandi jólatréð.
Gestir geta einnig skrifað jólakveðju á fallegt kort og sent í rauða póstkassann fyrir framan sviðið — pósturinn sér um restina!
Gleðilega Jóladrauma!
Með fyrirvara um breytingar.