Álfar og Irmlar Tónlistarleikhús

Álfar og Irmlar

Á þessum tónleikum mun Dúó Stemma tengja saman íslenskar þjóðvísur, þulur og ljóð við splúnkunýtt efni . Við kíkjum inn í fortíðina í tali og tónum og spáum í álfa og ýmislegt tengt þeim.
Við fengum innblástur úr  nýrri ljóðabók ungra höfunda sem heitir “Dagur Íslenskrar Flúngu”.Í þeirri bók koma Irmlar við sögu sem gætu verið einskonar nútíma álfar.  Við höfum valið nokkur ljóð úr bókinni og ætlum að tón- og hljóðsetja þau eftir okkar höfði. Hvernig irmlar hljóma, og hvernig þeir hreyfa sig og þar fram eftir götunum.

Til þess  notum við hefðbundin og óhefðbundin hljóðfæri og hljóðgjafa, til þess að skapa spennandi og áhugaverðan hljóðheim.

Börnin fá að taka þátt á skapandi hátt í tónleikunum í orðum söng og leik.

Íslensk þjóðlög og tunga, gömul og ný verða hryggjarstykkið í þessu verkefni.

Upplýsingar
Hvað

Tónleikar

Hvenær

4. - 8. maí 2026

Hvar

Vestfirðir

Hverjir

Herdís Anna Jónsdóttir og Steef van Oosterhout

Aldurshópur

1. - 4. bekkur

Aðstaða og tækni