Elsku krakkar á Austurlandi,
Nú erum við, Ingibjörg, Sunna og Leifur að koma í heimsókn til ykkar í október/nóvember og við hlökkum ofboðslega mikið til! Við ætlum að spila fyrir ykkur spriklandi nýja jazztónlist undir yfirskriftinni Jazzhrekkur en lögin fjalla um fyrirbæri tengd hrekkjavöku; drauga, nornir, afturgöngur og kóngulær. Þetta er einstaklega viðeigandi á hátíð myrkursins.
Það eru nokkrir hlutir sem okkur langar að segja ykkur frá svo þið getið undirbúið ykkur og hjálpað okkur að búa til svakalega hrekkjavökustemningu!
Mig langar til að kítla þig í tærnar.
Mig langar til að kítla þig í tærnar.
Ég er öggu poggu lítil könguló
og verð að ná þér
Ekki hlaupa’ í burtu, hvað er þig að hrjá? Ég kem ekki með í sturtu, það er mikil vá,
Ég er öggu poggu lítil könguló
og ætla’ að ná þér
Hér er Dans Kónulóanna til að hlusta og syngja með.
P.s það er líka gott að æfa nornahláturinn fyrir tónleikana.
Kv, Leifur, Ingibjörg og Sunna
JAZZ HREKKUR er tónleikadagskrá fyrir alla fjölskylduna þar sem reiddir verða fram jazztónar byggðir á þjóðtrú um að á tímamótum verði skilin milli mannheims og heims hins yfirnáttúrulega óljós, álfar, huldufók og uppvakningar birtast. Það er söngkonan Ingibjörg Fríða Helgadóttir, píanóleikarinn Sunna Gunnlaugsdóttir og kontrabassaleikarinn Leifur Gunnarsson sem fræða börnin um jazztónlist en gæta þess þó að hræða þau ekki of mikið.
Tónlistin er samin af Leifi Gunnarssyni og mega tónleikagestir búast við fjörugum og fræðandi tónleikum þar sem boðið verður upp á virka þátttöku í gegnum söng, klapp og dans.
Tónleikar
30. október - 2. nóvember 2023
Austurland
Ingibjörg Fríða Helgadóttir söngkona
Sunna Gunnlaugsdóttir píanóleikari
Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari
1.-4.bekkur
Skjávarpi